Um Myrk Store
MYRK STORE er lítið fjölskyldufyrirtæki sem byggir á ástríðu okkar fyrir fallegri hönnun, vönduðum húsgögnum og einstökum heimilisvörum.
Miklu meira en bara verslun
Fyrir okkur er MYRK STORE miklu meira en bara verslun. Þetta er okkar hjartans verkefni sem við sem fjölskylda leggjum ást, metnað og alúð í á hverjum degi, með það að markmiði að bjóða upp á fallega og vandaða hönnun sem auðgar heimilið og gerir hversdaginn enn betri.
Við trúum því að heimilið sé einn mikilvægasti staðurinn í lífi okkar. Þar eigum við okkar dýrmætustu stundir, sköpum minningar og njótum samverunnar með þeim sem okkur þykir vænst um.
Þess vegna leggjum við mikla áherslu á að velja vörur þar sem fagurfræði, gæði og notagildi fara saman. Við heillumst af tímalausri hönnun, fallegum efnum og úthugsuðum smáatriðum sem gera gæfumuninn. Hver vara er valin af kostgæfni, með það að leiðarljósi að bjóða upp á vörur sem við erum sjálf stolt af og myndum með ánægju hafa á okkar eigin heimili.

Persónuleg þjónusta
Persónuleg og framúrskarandi þjónusta er okkur hjartans mál. Við viljum að hver viðskiptavinur upplifi hlýlegt viðmót, faglega ráðgjöf og þá vissu að hann skiptir okkur máli. Okkur er mikilvægt að það sé bæði ánægjulegt og öruggt að versla hjá okkur.
Hluti af heimilinu þínu
Það er okkur ómetanlegt að fá að vera lítill hluti af heimilum viðskiptavina okkar og hjálpa þeim að skapa umhverfi sem endurspeglar þeirra eigin persónuleika, þar sem fegurð, hlýja og vellíðan fara saman.
Takk fyrir að velja MYRK STORE og styðja við litla fjölskyldufyrirtækið okkar. Án ykkar væri þetta ekki mögulegt. 🤎
Frí sending
Við sendum frítt hvert á land sem er þegar verslað er fyrir 20.000 kr. eða meira (af smávöru)
Skilafrestur
Kaupandi hefur 14 daga skilafrest á öllum vörum
Öruggar greiðsluleiðir
Við bjóðum upp á öruggar og fjölbreyttar greiðsluleiðir
Trúnaður
Fullur trúnaður um allar upplýsingar sem kaupandi gefur

Staðsetning verslunar
Verslun Myrk Store er staðsett að Faxafeni 10, 2. hæð (Faxatorg), 108 Reykjavík.
Gengið er inn um hlið hússins beint á móti Erninum.
Liljar ehf.
Kt. 711023-2240
Faxafeni 10, 108 Reykjavík
VSK nr. 154043

