Mini GO! With Ease handsfree taumur- Beige
Aðeins 1 eintak eftir.
Þægilegur og stílhreinn taumur sem hægt er að nota á þrjá vegu. Úr mjúku og sterku vefbandi.
Mini taumurinn er mini útgáfa af GO! With Ease handsfree taumnum, mini taumurinn er minni og fíngerðari að öllu leyti en hefur sömu eiginleika. Taumurinn er fallegur, stílhreinn og er hönnunin á honum einstök.
Taumurinn er hluti af GO! With ease línunni frá Maxbone sem er stílhrein, falleg og litrík. Línan inniheldur beisli, tauma, ólar og töskur í stíl og er fullkomin í útiveruna með hundinn.
Taumurinn með 3 fyrir 1 eiginleika sem gerir hann frábrugðinn venjulegum taumum, tauminn er hægt að nota á þrjá mismunandi vegu. Það er hægt að bera tauminn um mitti, öxl eða nota sem venjulegan taum. Hann er stillanlegur fyrir mitti og öxl og einnig er hægt að stilla lengd taumsins sjálfs svo hægt er að stjórna fjarlægð hundsins. Því er hægt að stilla tauminn eins og hentar og er hann ótrúlega þægilegur í notkun.
Klemmur á báðum endum taumsins með skrúfufestingu. Hægt að hengja t.d. tösku fyrir kúkapoka eða samanbrjótanlegu ferðaskálina á tauminn. En við mælum sérstaklega með GO! With Ease tösku til að hengja á tauminn, en taskan er skemmtileg lausn til þess að geyma mikilvæga aukahluti í göngutúrnum.
Taumurinn er fallegur, stílhreinn og er hönnunin á honum einstök.
Fyrir hunda að 10 kg. Ath. taumurinn kemur einnig í stærri stærð sem hentar stærri hundum.
Umhirða:
Handþvottur. Má nota milda sápu.
Mælum gegn því að setja tauminn í þvottavél þar sem klemmurnar á taumnum eru þungar og fara ekki vel í þvottavél.
Stærð:
Mittis - og axlarstykki: 74 - 135 cm.
Taumur notaður með mittis - /axlarstykki : 105 - 151 cm.
Taumur notaður sem venjulegur taumur: 82 - 127 cm.
Breidd taums: 1,20 cm.
Ekki tókst að sækja upplýsingar um afhendingu
Afhending
Afhending
Pantanir sem berast fyrir kl. 12 á virkum dögum eru sendar samdægurs, annars næsta virka dag. Við sendum með Dropp og Eimskip um land allt og einnig er hægt að sækja pöntun í verslun okkar í Faxafeni 10, 2. hæð. Frí sending þegar verslað er fyrir 20.000 kr. eða meira (af smávöru).
Skilafrestur
Skilafrestur
Þú hefur 14 daga til að skila vöru, að því tilskildu að hún sé ónotuð og í óuppteknum upprunalegum umbúðum.
Greiðsluupplýsingar þínar eru unnar á öruggan hátt. Við geymum ekki kortaupplýsingar og höfum ekki aðgang að þeim.

