Mynd- The Sin
Aðeins 4 eintök eftir.
Um listamanninn
Marcello Gatti er 45 ára gamall ítalskur listamaður sem býr, starfar, lifir og hrærist í listalífinu í Milano á Ítalíu.
Hann hefur starfað við klippilist síðastliðin 17 ár, þar sem hann tekur efni, oft út gömlum tímaritum, póstkortum og fleiru, klippir til og breytir yfir í ný listaverk sem eru einstök og sjást ekki víða.
Að eigin sögn lýsir hann sér sem "óvirðulegs" en margþætts listamanns og er grafísk undirskrift hans auðþekkjanleg á fjölmörgum sviðum, allt frá tónlist til auglýsinga.
Með vörumerki sínu "Myoopia", horfir hann út fyrir raunveruleikan og greinir og afhjúpar hulin svæði. Skemmtilega rannsaka augu hans augnablikið, nútíðina og fortíðina, í leit að sönnum táknum nútímans.
Þar sem ákaft er leikið á tákn og merkingu. Þessi "form" sem tákna samruna listrænnar hugsunar listamannsins, milli grafískra, furðulegra og sjónrænna þversagna, en eru þó alltaf í stöðugu jafnvægi milli ánægju og sársauka og milli friðsamlegrar tilveru og óumflýjanlegs ófriðs.Verk þessa frábæra klippilistamanns hafa aldrei verið fáanleg á Íslandi áður, en eru nú komin í örfáum eintökum hvert, til okkar í Myrk Store.Öll verkin koma beint frá vinnustofu listamannsins í Milano og eru prentuð á hágæða Fedrigoni 550 gr. pappír, í stærðinni 42x30 cm, stimpluð og árituð af Marcello Gatti sjálfum.
Ekki tókst að sækja upplýsingar um afhendingu
Afhending
Afhending
Pantanir sem berast fyrir kl. 12 á virkum dögum eru sendar samdægurs, annars næsta virka dag. Við sendum með Dropp og Eimskip um land allt og einnig er hægt að sækja pöntun í verslun okkar í Faxafeni 10, 2. hæð. Frí sending þegar verslað er fyrir 20.000 kr. eða meira (af smávöru).
Skilafrestur
Skilafrestur
Þú hefur 14 daga til að skila vöru, að því tilskildu að hún sé ónotuð og í óuppteknum upprunalegum umbúðum.
Greiðsluupplýsingar þínar eru unnar á öruggan hátt. Við geymum ekki kortaupplýsingar og höfum ekki aðgang að þeim.

