KRYM Sturtuhilla, 40 cm- Svört

13.790 kr.

Stílhrein og endingargóð sturtuhilla (40 cm að lengd, hæð 9,2 cm, dýpt 9,2 cm) sem sameinar minimalíska hönnun og traust efni. Hentar fullkomlega í nútímalegt baðherbergi þar sem útlit og notagildi fara saman. Hönnuð til að falla inn í rýmið – án þess að fórna gæðum.
Lýsing:
Sturtuhillan er hönnuð með einfaldleika og notagildi að leiðarljósi. Hreinar línur og mött svört áferð skapa rólegt og tímalaust útlit sem fellur vel inn á flest baðherbergi.
Hillan er framleidd úr 302 ryðfríu stáli og húðuð með slitsterkri dufthúðun sem veitir yfirborðinu aukna vörn gegn raka og daglegu sliti. Útkoman er varanleg og falleg lausn sem heldur sér vel í krefjandi umhverfi eins og í sturtu. Í botni hillunnar eru rifur sem hleypa vatni í gegn, sem hjálpar til við að halda yfirborðinu hreinu og þurru. Á sitthvorum endanum eru hankar sem henta vel til að hengja þvottapoka, skrúbb eða aðra fylgihluti.
Hentar jafnt fyrir sjampó, sápur og aðrar nauðsynjar og heldur öllu skipulögðu og aðgengilegu. Hentar í rök rými eins og sturtur en má auðvitað nota hvar sem er 🙂
Viðhald: Þrífa með rökum klút
Hægt er að festa hilluna á tvo vegu:
Með skrúfum fyrir varanlega festingu (svartar hettur fylgja sem fela skrúfur) eða með límpúðum fyrir einfaldari uppsetningu án borunar. Hillunni fylgja 4 sterkir 3M iðnaðarlímpúðar sem tryggja örugga og stöðuga festingu á slétt yfirborð. Mikilvægt er að hreinsa og þurrka yfirborðið vel áður en límið er sett upp til að tryggja hámarks viðloðun. 
Helstu eiginleikar:
  • Minimalísk og tímalaus hönnun
  • 302 ryðfrítt stál
  • Slitsterk dufthúðun (mött áferð)
  • Rifur í botni sem hleypa vatni í gegn
  • Hankar á sitthvorum enda fyrir aukahluti
  • 4x 3M iðnaðarlímpúðar fylgja með

Availability: Á lager

  • Nýir viðskiptavinir fá 10% afslátt af fyrstu kaupum.
  • Frí sending fyrir smávöru ef keypt er fyrir meira en 20.000 kr. Við sendum með Eimskip og Dropp um mest allt land.
  • Sveigjanlegir greiðslumátar – Borgaðu núna, síðar eða með raðgreiðslum. Við bjóðum upp á flest greiðslukort, Netgíró og Aur.Einnig er hægt að millifæra.
  • Auðveld skil því við erum með 14. daga skilafrest á meðan varan er í uppunalegum umbúðum og ósködduð (Sjá viðskiptaskilmála)
Shopping Cart